Fræðsla

Á stofunni starfar einungis faglært starfsfólk. Það skiptir okkur miklu máli að fólk fái réttar upplýsingar frá byrjun og því kappkostum við að veita framúrskarandi þjónustu og fræðslu.

Hér að ofan undir „fræðsla“ má finna margskonar upplýsingar eins og leiðbeiningar eftir skurðaðgerðir, æskilegt fæði eftir tannúrdrætti og skurðaðgerðir, upplýsingar vegna tannplantaísetningar, kjálkafærsluaðgerða og margt fleira.

mottaka@tannlaekningar.is

Nemo enim ipsam voluptatem quia voluptas sit aspernatur aut odit aut fugit, sed quia consequuntur magni dolores eos qui ratione voluptatem sequi nesciunt. 

Leiðbeiningar eftir tannúrtöku og skurðaðgerðir í munni.

Almennar upplýsingar

  • Forðist að neyta vökva með röri
  • Forðist heita drykki
  • Forðist þrýsting og sog
  • Forðist að lyfta þungu og halla höfði fram
  • Sleppa líkamsrækt og hlaupum í c.a 5 daga
  • Fljótandi fæði fyrstu tvo dagana og mjúkt fæði þar til saumarnir eyðast.
  • Forðist kornótta fæðu, td jarðaber, chia fræ, kiwi osfrv.

Sárið

Saumarnir eyðast á 7-10 dögum og því er engin saumataka.

Til að sárið grói sem best er mikilvægt að:

  • Forðast að sleikja eða sjúga sárið
  • Forðast að snerta sárið með fingrum eða verkfærum
  • Forðast tóbak og áfengi fyrstu vikuna

Verkir

Mikilvægt er að taka verkjalyf fljótlega eftir aðgerð.

Gott er að taka 2x Parkodin/Parkodin Forte fljótlega eftir aðgerð og svo á 4 klst fresti út aðgerðardaginn.

Aldrei má taka sterk verkjalyf á tóman maga og einnig er mikilvægt að drekka nóg af vökva á meðan á inntöku á Parkodin stendur.

Ekki er mælt með að taka inn bólgueyðandi lyf eins og íbufen fyrsta sólahringinn eftir aðgerð.

Kæling

Gott er að kæla vel aðgerðasvæðið utanfrá eftir tannúrtöku og skurðaðgerðir í munni. Kælingin meðal annars:

  • Dregur úr verkjum
  • Dregur úr bólgu
  • Flýtir fyrir að blóðið storkni

Munnhirða eftir tannúrtöku og skurðaðgerð í munni

Burstið tennur en snertið ekki sjálft sárið með tannburstanum. Burstið í átt frá sári.

Eftir tannburstun skal skola munninn með Paroex 0,12% bakteríudrepandi munnskoli 2x á dag í viku – 1 mín í senn.

Sýklalyf : Ef sýklalyfjum hefur verið ávísað er allltaf nauðsynlegt að klára allar töflurnar svo góður árangur náist. Gott er að neyta LGG+ eða ABmjólk til að verja eðlilega flóru meltingarvegarins.

Oftast er sáragræðslan eðlileg og eftirköst fá, sé þessum reglum fylgt.

Góð munnhirða er nauðsynleg eðlilegri græðslu sára.

 Gangi ykkur vel!

Kveðja, starfsfólk.

Æskilegt fæði eftir skurðaðgerð í munni

Fljótlega eftir aðgerð er gott fá sér næringu í fljótandi formi. Það er mjög mikilvægt að drekka nóg af vökva fyrsta sólahringinn. Mikilvægt er að forðast alla fæðu sem þarf að tyggja að einhverju leyti fyrstu 2 klst eftir aðgerð á meðan deyfingin er enn í virkni.

Hugmyndir að fæðu í fljótandi formi:

  • Jógúrt
  • Skyr
  • Búðingur – t.d próteinbúðingur, súkkulaði-/karamellubúðingur
  • Rjómaís (með skeið, alls ekki röri)
  • Súpur (kæla örlítið niður og reyna að hafa hana eins tæra og hægt er)
  • Ávaxtadrykkir (án aldinkjöts) – t.d Innocent og Froosh

 

Að tveimur dögum liðnum frá aðgerð má færa sig yfir í mjúka fæðu og halda sig við hana þar til saumarnir eyðast sem tekur vanalega 7-10 daga.

Mikilvægt er að taka mun minni matarbita en vant er svo hægt sé að stjórna „flæði fæðunar“ betur í munni og matur fari síður í sárin.

Hugmyndir að mjúku fæði til viðbótar við fljótandi fæði:

  • Brauð með smjöri, kæfu, smurosti – án skorpu og korna
  • Fiskur, kjúklingur, kartöflur – með sósu til að mýkja
  • Súpur
  • Stappaður banani
  • Gufusoðið stappað grænmeti
  • Grjónagrautur og hafragrautur – mauksoðnir
  • Soðin og steikt egg

…..og önnur sambærileg fæða.

Amet consectetur adipisci velit sed quia non numquam eius modi tempora incidunt.